|
Bændurnir komnir til að vera |
|
Saturday, 16 January 2010 12:11 |
 Eftir góðar viðtökur um jólin munum við halda ótrauð áfram inn í nýja árið. Verslunin verður keyrð áfram með svipuðu sniði og ekkert að gera nema að auka úrvalið núna þegar nær dregur sumri. Í boði í augnablikinu verða garðyrkjuafurðir eins og tómatar, kartöflur, rófur, hnúðkál, krydd og fleirra sem til er hverju sinni. Einnig verða mjólkurafurðir frá Bióbú eins og jógúrt, skyr, rjómaostur, Sorbit-ís, rjómaís og fleirra. Þá eru ýmsar heimatilbúnar afurðir, svo sem chilepiparmauk, gúrkur í kryddlegi, mjólkursýrðar gulrætur, ávaxtasultur og kompott, þurrkaðir ávextir og fleirra. Einnig eru innfluttir lífrænir ávextir frá hinum ýmsu hornum veraldar. Villimey verður líka með sín galdrasmyrsl. Helstu framleiðendur sem eru með á þessum árstíma eru Garðyrkjustöðin Akur, Engi, Móðir Jörð, Villimey og Bióbú. En síðan komum við færandi hendi úr sveitini með nýjar vörur þegar þær verða til. Markaðurinn er opin Mánudaga til Föstudaga frá 12-18 og Laugardaga frá 12-16. Kveðjur úr Sveitinni
|